Skólarnir
Saga skólanna nær allt aftur til ársins 1988 þegar Tölvuskóli Íslands var stofnaður. Skólinn er einn fyrsti skólinn hér á landi til að bjóða almennt ásamt starfstengdu skrifstofutækninámi. Frá upphafi hefur skólinn útskrifað hundruði nemenda og var brautryðjandi þeirra skóla sem fylgdu í kjölfarið.
Skömmu síðar var Stjórntækniskóla Íslands komið á laggirnar og var markmið hans að þjálfa fólk til sölu og markaðsstarfa innan Íslenskra fyrirtækja.
Ferðamálaskóli Íslands hóf starfsemi 1991 og var fyrsti skóli hér á landi til að hefja alþjóðlegt nám í ferðamálum IATA/UFTAA. Í dag er krafa ferðaþjónustunnar að starfsfólk hafi slíka menntun. Boðið er uppá tvenns konar nám. Annars vegar svokallað „Foundation“ nám þar sem megin áhersla er lögð á ferðalandafræði, farseðlaútgáfu og Amadeus farbókunarkerfi flugfélaga og ferðaskrifstofa.
Skólinn er í mjög góðu samstarfi við flugfélög og ferðaskrifstofur enda er stór hluti starfsfólks þeirra útskrifaður úr þessum skóla.
Jafnframt er boðið uppá „IATA/UFTAA Marketing Course“ þar sem áhersla er lögð á sölu og markaðsmál í ferðaþjónustu, og höfðar það nám til allra þeirra sem vilja kynnast því hvernig standa skal að sölu og markaðsmálum i ferðaþjónustunni hvort heldur sem er flugfélag, ferðaskrifstofa, bílaleigur eða hótel o.s.frv.
Leiðsögunám hófst fyrir nokkrum árum síðan og veitir ekki af að fá dugmikið fólk til starfa í þeirri grein þar sem fjöldi erlendra ferðamanna fer sívaxandi. Á komandi árum er búist við hundruðum skemmtiferðaskipa til landsins auk þeirra ferðamanna sem koma á eigin vegum. Þegar hefur yfir milljón erlendra ferðamanna komið árlega til Íslands og er þá gott að vera í stakk búinn til að taka á móti öllum þeim fjölda.