Stjórntækniskóli Íslands
Stjórntækniskóli Íslands var settur á laggirnar upp úr 1988 og var markmið hans að þjálfa fólk til sölu og markaðsmála í fyrirtækjum. Fyrsta námsbrautin sem skólinn bauð upp á var 100 klst. nám í Markaðsfræði þar sem skilgreind voru helstu hugtök markaðsfræðinnar og meðal kennsluefnis var; markaðsrannsóknir. markaðsumhverfi, markaðshlutun og markhópar, kostnaður og arðsemi.
Í janúar 2005 hófst markvisst og ítarlegt námskeið í Markaðslegri boðmiðlum hjá Stjórntækniskólanum. Námskeiðið stóð yfir í 12 vikur og meðal kennsluefnis var: helstu tegundir kynninga, mótun viðhorfs neytenda, samskipti við auglýsingastofur, bein markaðssetning, almannatengsl og hlutverk fjölmiðla í markaðssetningu.
Nánar má kynna sér námsbrautirnar með því að smella á hnappana hér að neðan.